We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

various mixes

by gímaldin

/
1.
2.

credits

released September 23, 2013

HIÐ SÍÐSTA LAG

Á göngunni löngu gegnum hríðina
gafstu mér auga sem var hulið slikju
af gefinni reynslu gegnum tíðina
gat ég mér tilum að þetta var ekki vagl

í sjóbörðum kofa við knúsandi augu
kraup ég við mjöðm þér og bað þig um tímann
í vakandi svefni með drottnkærum draugum
dreymir mig tungu semað kann ekki á síma

golan feykt´engum neistum / lágt var sindursins flug
að bálkestinum reistum / brunnu eldfærin upp
en eldfærin loguðu glatt meðan glóðin
gleypt´í sig skýjaborgir
og í sandinum brosandi brennisslóðin
bréfin sín skrifaði - kunn´ekk´að hætta

margdæmda nornin stendur við brauðbretti
brunasár ljær henni roða í kinn
með fjölkynngi særast fram sódómskir smáréttir
og sæljón með drekatönn lepur upp feiti

við borð útá rúmsjó rær sinni fleytu
rammsaklaus ungi semað kann ekki á spjaldskrár
að vöknuðum áhuga í ólgandi bleytu
afræður landgang sá gráeygði bláskjár

öldurnar geng´á land óbrotnar / ágangur svarf engin berg
og hjartgóðar konur í bakinu lotnar
grófu í fjörunni skurð
en aldan vaggaði glatt meðan vindur
velt´enni tilogfrá
og gráeygði unginn sem var þó vel syndur / varð ekki ofaná

jörðin skalf og stoð heimsins stamaði
stíf umbrot skók´alla jarðskjálftamæla
sjóðandi möttulsvatn samgöngur lamaði
seigfleyttur jarðvegur tók hús á mér

flekar og prammar og kafbátar kynjanna
kjöldrógu bát minn en / þóttust samt sofa
í skipsbókum skýrslufært samansafn synjanna
söng ég lofa að hætta að lofa

license

all rights reserved

tags

about

gímaldin Reykjavík, Iceland

Electro-midi-pop, Very alt-country, Folk Rock, , Anarchy metall, and so on

Started out as a new wave rocker, turned troubador, turned electro-ambient, then folk, spoken word, then country-ethno-barding, then remixer and back into rock, then blues and some dubbing. Examples of most phases on main site: www.gimaldin.com ... more

contact / help

Contact gímaldin

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this album or account

If you like gímaldin, you may also like: