We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Þr​í​r haltir englar

from Skipið siglir by 5ta herdeildin by gímaldin

/

about

by gímaldin

lyrics

Þrír haltir englar

Þær hrapa niður af himnum
Einsog haltir englar
Þar líða þær um loftin blá
Og lenda svo á mér
Ég gríp þær útaf gestrisni
Geri eins við þær og aðra
Býð þeim heim í bústaðinn
Og bítilegan mat og drykk

Ég færi þeim í fletið
Steikt flesk þegar nóttin morgnar
Danska snúða og dagblaðið
Og demantskreytt armbandsúr
Ég sit með þeim í sófanum
Og syng þeim ástarkvæði
Helli þeim úr hjarta mínu
Hlýju þá sem ég á til

En hverju svara - þær mér
Launa þær mér lífgjöfina, létta undir húsverkin?
Segðu mér, til hvers er
Að gera öðrum gustuk ef þeir gjalda aldrei annað eins?

Sitja þær við sjónvarpið
Og sötra gin og tónik
Sníkja frá mér snakkið allt
Og snýta sér í gólfteppið
Á línunni þær liggja
Og leyfa mér aldrei að hringja
Þær masa bara og panta pizzur
Og pína síðan sendilinn

Bölvuð þvæla að þolinmæði
Þrautir vinnur allar
Það borgar sig að bremsa strax
Eða bjóða engum inn
Sníkjudýrin vaxa og vaxa
Og velta að lokum mér úr stóli
Vesenið er vítahringur
Sem versnar bara ef því er mætt

Seljum allt, allt er falt
Eigur eru einskis verðar, eigum heldur reiðufé
Brennum hús, tilað borga bús
Lífið er svo ljúft ef lánin eru greidd og laus við þær
Og þú arkar einn í auðninni

credits

from Skipið siglir by 5ta herdeildin, released June 1, 2006
violin by Hjörleifur Valsson

license

all rights reserved

tags

about

gímaldin Reykjavík, Iceland

Electro-midi-pop, Very alt-country, Folk Rock, , Anarchy metall, and so on

Started out as a new wave rocker, turned troubador, turned electro-ambient, then folk, spoken word, then country-ethno-barding, then remixer and back into rock, then blues and some dubbing. Examples of most phases on main site: www.gimaldin.com ... more

contact / help

Contact gímaldin

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this track or account

If you like gímaldin, you may also like: