We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Illt er að lenda í lj​ó​num

from Skipið siglir by 5ta herdeildin by gímaldin

/

about

music: Loftur/gímaldin
lyrics: gímaldin

lyrics

Illt er að lenda í ljónum

Illt er að lenda í ljónum
Þau læsa í mann klónum og bíta um barka
Mundu ef þú lendir í ljóni
Að lufsast ekki heldur bæði spýta og sparka

Ég þekkti eitt sinn mann sem missti af strætó
Og hann mundaði skammbyssu við pönnuna
Frumkvæðið hans fannst mér ósköp ágætt þó
Eðlilegra hefði verið að labba bara í vinnuna

Illa fór ríki að ráði sínu
Er ríkisþjónn með ferðasmásjá fór að skoða bókhald
Mafíu sem burt af beinni línu
Beygði smá en sá sig um og hét að hafa aðhald

Því vinir okkar eru vinir okkar
Og váleg firra að ætla sér í rökræðu við þá
Það er tæpt að taka þorgrímstand þegar langir vindlar lokka
Og leiða þig um edensgarð bæði ofan og neðan frá

Mundu hverra manna þú ert
Og mundu að sverja áfram hollustu þeim
Sem stýra því hve hátt í haugnum þér er gert
Að halda þig með sementið sem lengst frá þínum fótum tveim

Hún færir okkur bensín og brauð
Og breiðskífu með ensími ef við verslum kjöt
Við sjáum ef við rýnum að hún er rauð
Hún réttir skarðan hlut og stoppar kúlnagöt í föt

Mundu ef það haustar á þig hreingerningaræði
Að halda tryggð við þá sem dekka borð þitt með spiki
Aðrir kunna að bjóða þér frítt fæði
Ef þú færir eyrnaleysingjum höfuð mitt á priki

Mundu þá er ferðu inní fangelsið
Og finnur í mergðinni manninn sem þú myrtir
Það yrði öllu hættuminna hittelsið
Ef á hæla niður brækurnar þú sjálfur niður gyrtir

credits

from Skipið siglir by 5ta herdeildin, released June 1, 2006

license

all rights reserved

tags

about

gímaldin Reykjavík, Iceland

Electro-midi-pop, Very alt-country, Folk Rock, , Anarchy metall, and so on

Started out as a new wave rocker, turned troubador, turned electro-ambient, then folk, spoken word, then country-ethno-barding, then remixer and back into rock, then blues and some dubbing. Examples of most phases on main site: www.gimaldin.com ... more

contact / help

Contact gímaldin

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this track or account

If you like gímaldin, you may also like: